Héraðsdómur Reykjavíkur starfar samkvæmt lögum nr. 15/1998.
Afgreiðsla dómstólsins er opin virka daga frá kl. 8:30-16:00. Skiptiborð er opið frá kl. 8:30-15:00.
Sumartími; Frá 1. júlí 2010 til 31. ágúst 2010 verður afgreiðsla dómstólsins opin virka daga frá kl. 9-12 og frá kl. 13-15. Skiptiborð er opið á sama tíma. Athugið þó sumarlokun.
Sumarlokun; Dómhúsið verður lokað frá og með 26. júlí til og með 6. ágúst 2010. Vaktsími dómritara er 899-9291. Kvittanir fyrir greiðslu dómsmálagjalda þurfa að fylgja erindum sem berast í pósti. Upplýsingar um dómsmálagjöld og reikningsnúmer má finna hér.
Dómstóllinn hefur aðsetur í Dómhúsinu við Lækjartorg. Dómstjóri er Helgi I. Jónsson.
Umdæmi Héraðsdóms Reykjavíkur er ein dómþinghá, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 395/1998. Eftirtalin sveitarfélög heyra til umdæmis hans: Reykjavík, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Kjósarhreppur.
Regluleg dómþing eru þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10.00. Þingstaður er í dómsal 102 í Dómhúsi Héraðsdóms Reykjavíkur við Lækjartorg.
Hlé eru á reglulegum dómþingum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum ár hvert. Þá falla regluleg dómþing niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971.
Nýir dómar
31. ágúst 2010 E-1990/2009 Héraðsdómur Reykjavíkur
Allan V. Magnússon héraðsdómari
Allan V. Magnússon héraðsdómari
Stefndu sýknuð af skaðabótakröfu kaupenda fasteignar.
30. ágúst 2010 E-8950/2009 Héraðsdómur Reykjavíkur
Allan V. Magnússon héraðsdómari
Allan V. Magnússon héraðsdómari
Stefndi dæmdur til að greiða reikning fyrir vinnu meindýraeiðis.
30. ágúst 2010 E-11336/2009 Héraðsdómur Reykjavíkur
Allan V. Magnússon héraðsdómari
Allan V. Magnússon héraðsdómari
Stefndi dæmdur til að greiða stefnanda laun í veikindaforföllum sem voru talin sönnuð með læknisvottorðum.
30. ágúst 2010 E-11410/2009 Héraðsdómur Reykjavíkur
Allan V. Magnússon héraðsdómari
Allan V. Magnússon héraðsdómari
Stefndi í aðalsök sýknaður af kröfu stefnanda og stefndi í gagnsök sýknaður af kröfu stefnanda. Málskostnaður fellur niður.
Fréttir
Greinar
Heimasíður dómstólanna
Leit
Mynd











