Sérfróðir meðdómsmenn
Sérfróðir meðdómsmenn eru tilnefndir úr hópi umsækjenda og er öllum þeim sem uppfylla neðangreindar kröfur frjálst að leggja inn umsókn. Vinsamlegast athugið að ekki er um neinn umsóknarfrest að ræða.
Sérfróðir meðdómsmenn eru kallaðir til í málum þar sem sérkunnáttu er þörf til þess að leysa úr máli svo og ef mál er umfangsmikið eða sakarefni er mjög mikilvægt frá almennu sjónarmiði. Markmið kvaðningar sérfróðra meðdómsmanna er að auka líkurnar á því að dómurinn komist að réttri niðurstöðu. Hlutverk sérfróðra meðdómsmanna er meðal annars að yfirfara og gagnrýna þau sérfræðigögn sem fyrir liggja í málum þar sem hinum reglubundnu dómurum er það ófært, vegna skorts á sérfræðiþekkingu á viðkomandi sviði. Hvers kyns sérfræðigögnin eru hverju sinni er alfarið háð eðli og umfangi viðkomandi máls. Er því ekki hægt að segja til um hvaða gögn viðkomandi sérfróði meðdómsmaður mun koma til með að meta eða með hvaða hætti, fyrr en hann hefur verið kveðinn til setu í tilteknu máli.
Tilnefning og hæfi meðdómsmanna:
Almennar hæfniskröfur koma fram í VII. kafla um sérfróða meðdómsmenn í 39. gr. laga um dómstóla
nr. 50/2016
Umsóknir
Umsóknir skal senda rafrænt í gegnum vefgátt dómstólasýslunnar. Með umsókninni þurfa að fylgja: ferilskrá, staðfestingu hæsta námsstigs á viðkomandi sérfræðisviði og umboð fyrir dómstólasýsluna til þess að sækja sakavottorð. Veita þarf dómstólasýslunni umboð til að sækja sakavottorð með því að fylla út eyðublað og senda með umsókninni. Eyðublaðið má finna hér: Umboð.
Dómstólasýslan mun varðveita allar umsóknir og tilnefna sérfróða meðdómsmenn úr hópi umsækjenda eftir þörfum á hverjum tíma.
Leiðbeiningar um hvernig er sótt um í gegnum vefgáttina má finna hér.
Athugið að nauðsynlegt er að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum eða með Íslykli í gegnum island.is til þess að komast inn í umsóknarformið. Smellið hér til þess að sækja um.
Tilnefndir sérfróðir meðdómsmenn
Þeir umsækjendur sem tilnefndir verða fara á lista sem er aðgengilegur starfsfólki dómstólanna. Umræddur listi yfir sérfróða meðdómsmenn er birtur á vefsíðu dómstólasýslunnar, sbr. 1. mgr. 3. gr. reglna dómstólasýslunnar nr. 14/2018 um sérfróða meðdómsmenn. Listinn er uppfærður reglulega á vefnum.
Listi yfir tilnefnda sérfróða meðdómsmenn dags.4. desember 2024
Af listanum verða svo kvaddir þeir sérfróðu meðdómendur sem henta best viðkomandi máli hverju sinni. Þó svo að aðili hafi hlotið tilnefningu veitir það ekki fullvissu fyrir því hvort eða hversu oft sérfróður meðdómsmaður má eiga von á því að verða kvaddur til.
Nánar um tilnefningu, hæfi, kvaðningu og reglur um sérfróða meðdómsmenn vísast til VII. kafla laga um dómstóla nr. 50/2016, en lögin má finna
hér.
Reglur dómstólasýslunnar nr. 2/2022 um sérfróða meðdómsmenn