Reglur dómstólasýslunnar nr. 15/2018
1. gr.
Reglur þessar gilda um afhendingu og aðgang ákæruvaldsins, verjenda, lögmanna málsaðila í einkamálum og aðila að hljóð- og myndskrám á grundvelli 4. mgr. 16. gr. og 2. mgr. 202. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, og 3. mgr. 14. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991.
Verklagsreglurnar gilda einnig um tilfærslu hljóð- og myndskráa á milli dómstiga.
2. gr.
Verjendum, lögmönnum brotaþola og lögmönnum málsaðila í einkamálum skal afhenda upptökur af munnlegum framburði fyrir héraðsdómi. Aðeins skal afhenda hljóðskrá þótt framburður hafi verið tekinn upp í hljóði og mynd.
3. gr.
Verjandi, lögmaður brotaþola eða lögmaður málsaðila í einkamáli, sem leitar eftir því við héraðsdómstól að fá hljóðupptökur afhentar í máli sem hann hefur farið með í héraði eða mun fara með fyrir Landsrétti skal beina skriflegri beiðni þess efnis til viðkomandi héraðsdómstóls. Í henni skal tilgreint í hvaða tilgangi leitað sé eftir hljóðupptökunum.
Hljóðupptökur skulu afhentar á geisladiski eða minnislykli.
4. gr.
Verjanda, lögmanni brotaþola eða lögmanni málsaðila í einkamáli sem fær hljóðupptöku afhenta er óheimilt að afhenda öðrum upptökuna, fjölfalda hana eða birta opinberlega. Honum er hins vegar heimilt að veita skjólstæðingi sínum aðgang að hljóðupptökunni til að hlusta á hana.
5. gr.
Þegar máli hefur verið áfrýjað skal sá héraðsdómstóll, þar sem mál var rekið, verða við beiðni ríkissaksóknara um afhendingu á upptökum í viðkomandi máli endurgjaldslaust. Skrárnar skulu færðar á geisladisk eða minniskubb og sendar ríkissaksóknara með öruggum hætti.
6. gr.
Lögmenn brotaþola í sakamálum og lögmenn málsaðila í einkamálum skulu greiða fyrir afrit eftir reglum laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs. Verjandi ákærða í sakamálum fær eftirgerð af hljóðupptökum endurgjaldslaust.
7. gr.
Verjandi, lögmaður brotaþola eða lögmaður málsaðila í einkamáli, sem fær afhentar upptökur skal undirrita yfirlýsingu um trúnað á staðlað eyðublað héraðsdómstólanna.
8. gr.
Ef verjandi, lögmaður brotaþola eða lögmaður málsaðila í einkamáli telur þörf á að kynna sér myndupptöku, sem verður til á grundvelli 3. mgr. 13. gr. laga nr. 88/2008 og 3. mgr. 11. gr. laga nr. 91/1991, eftir að hafa kynnt sér hljóðupptöku, getur hann fengið, svo fljótt sem auðið er, að skoða myndupptöku á starfsstöð hlutaðeigandi héraðsdómstóls.
9. gr.
Málsaðili, hvort heldur sem er í einkamálum eða sakamálum, getur fengið, svo fljótt sem auðið er, að kynna sér upptökur á starfstöð hlutaðeigandi dómstóls.
10. gr.
Allar upptökur sem gerðar eru í héraðsdómstólum skulu færðar á milli dómstiga með rafrænum hætti þegar þörf krefur með því að færa gögnin á milli aðgangsstýrðra mappa í miðlægum kerfum sem viðkomandi dómstólar hafa aðgang að.
Afritun á upptökum á milli dómstiga skal miða við hljóð- og myndskrár á upprunalegu sniði úr FTR-kerfi.
Hjá hverjum héraðsdómstól skulu einn til tveir starfsmenn vera ábyrgir fyrir því að afrita upptökur yfir á drif sem Landsréttur hefur aðgang að (U-drif) þegar dómsniðurstöðu hefur verið skotið til Landsréttar og skulu þeir gæta þess að upprunalegu hljóðskrárnar séu áfram aðgengilegar viðkomandi héraðsdómstól hjá vörsluaðila.
11. gr.
Hljóðupptökur af framburðum í sakamálum skulu ritaðar upp af starfsmönnum héraðsdómstóla þegar máli er áfrýjað. Í einkamálum skal lögmaður áfrýjanda annast að láta rita upp hljóðupptökur.
12. gr.
Við endurritun skal þess gætt að setja inn upplýsingar um tímasetningu á skýrslutökudegi (klukkustund innan dags, mínútu og sekúndu) á spássíu endurrits ekki sjaldnar en einu sinni á hverri blaðsíðu í endurriti.
13. gr.
Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 6. tl. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla og eru bindandi. Þær öðlast gildi 22. maí 2018.
Þannig samþykkt í stjórn dómstólasýslunnar
22. maí 2018.
Benedikt Bogason
formaður stjórnar dómstólasýslunnar.