Reglur dómstólasýslunnar nr. 4/2026
1. gr.
Laun dómara
Um laun dómara fer samkvæmt 44. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla. Laun dómara taka breytingum 1. júlí ár hvert. Hagstofa Íslands reiknar og birtir fyrir 1. júní hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa starfsmanna ríkisins fyrir næstliðið almanaksár. Við mat á launabreytingum aflar Hagstofan skýrslna og gagna sem hún telur nauðsynleg og gerir jafnframt eigin kjararannsóknir eftir því sem hún telur þörf á. Við launaafgreiðslu fyrir júlí uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð til samræmis við tölur Hagstofunnar, sbr. 4. mg. 44. gr. laga nr. 50/2016. Greiðslur fyrir gæsluvaktir eru til samræmis við fyrri ákvarðanir þar um.
2. gr.
Námsleyfi dómara
Um laun í námsleyfi dómara fer samkvæmt 7. mgr. 44. gr. laga nr. 50/2016. Dómari á annars vegar rétt á námsleyfi á launum til endurmenntunar og hins vegar styrk til starfsmenntunar. Dómari á rétt á launuðu námsleyfi á fjögurra ára fresti til að stunda endurmenntun, fyrst eftir fjögur ár í starfi. Dómari ávinnur sér þriggja vikna leyfi á hverju ári. Þó getur uppsafnaður réttur mest orðið sex mánuðir og greiðist ekki út við starfslok. Dómari heldur launum í námsleyfi og fær greiddan ferða- og dvalarkostnað samkvæmt reglum ferðakostnaðarnefndar. Nánari reglur um námsleyfi dómara, þar á meðal um hámark ferða- og dvalarkostnaðar, er að finna í reglum dómstólasýslunnar þar um.
3. gr.
Persónuuppbót
Fyrsta desember ár hvert skal dómari fá greidda persónuuppbót sem er föst krónutala og skal hún taka sömu hlutfallslegri breytingu og laun dómara tóku 1. júlí sama ár, sbr. 1. gr. reglnanna.
Persónuuppbót í desember 2022 var ákveðin 229.500 krónur.
4. gr.
Önnur starfskjör
Um önnur starfskjör dómara fer samkvæmt gildandi reglum um almenn starfskjör forstöðumanna ríkisins eftir því sem við getur átt, sbr. heimild í 6. mgr. 44. gr. laga nr. 50/2016, sbr. einnig 39. og 39. gr. a. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
5. gr.
Heimild og gildistaka
Reglur þessar eru settar samkvæmt 6. mgr. 44. gr. laga nr. 50/2016. Þær öðlast þegar gildi og falla þá úr gildi reglur nr. 5/2022 um almenn starfskjör dómara.
Þannig samþykkt í stjórn dómstólasýslunnar
29. janúar 2026
Sigurður Tómas Magnússon
formaður stjórnar dómstólasýslunnar