Reglur dómstólasýslunnar nr. 3/2026

 

 

1. gr.

Launakjör dómenda við Endurupptökudóm

Dómendur Endurupptökudóms fá greitt fyrir hvert mál sem þeir taka sæti í samkvæmt tímagjaldi sem nemur 19.000 krónur fyrir hverja vinnustund. Tímaskráningar í einstökum málum lúta sérstökum reglum sem dómstóllinn setur sér í samráði við dómstólasýsluna.

Laun dómenda skulu hækka 1. júlí hvert ár í samræmi við hækkun launa dómara, sbr. 4. mg. 44. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla.

 

2. gr.

Heimild og gildistaka

Reglur þessar eru settar samkvæmt 9. mgr. 54. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla og öðlast þegar gildi.

 

Þannig samþykkt í stjórn dómstólasýslunnar
29. janúar 2026

 

Sigurður Tómas Magnússon
formaður stjórnar dómstólasýslunnar