Reglur dómstólasýslunnar nr. 16/2018
1. gr.
Réttur til námsleyfis
Á hverju starfsári ávinnur dómari sér rétt til þriggja vikna námsleyfis. Leyfið getur hann fyrst tekið eftir að hafa starfað í fjögur ár og síðan á fjögura ára fresti eftir það. Uppsafnað leyfi getur lengst orðið sex mánuðir.
Dómari heldur launum í námsleyfi og fær greiddan ferða- og dvalarkostnað skv. 6. gr.
Réttur til námsleyfis greiðist ekki út við starfslok.
2. gr.
Umsókn um leyfi
Umsókn um námsleyfi skal skilað til dómstólasýslunnar á þar til gerðu umsóknareyðublaði fyrir 1. maí vegna leyfis á næsta almanaksári.
Í umsókn um leyfi skal eftirfarandi koma fram:
a. Hvenær umsækjandi fékk skipun í embætti dómara.
b. Hvort umsækjandi hafi áður fengið námsleyfi og þá hvenær.
c. Hvaða nám eða fræðistörf umsækjandi ætli að leggja stund á í leyfi og hvernig það muni nýtast í starfi hans sem dómari. Ef við á skal tilgreina við hvaða skóla umsækjandi ætlar að stunda nám og hvort fyrirhugað sé að birta efni á grundvelli rannsókna umsækjenda.
d. Hvar umsækjandi ætli að dvelja á leyfistíma og áætlaðan ferða- og dvalarkostnað, ef við á.
e. Hvenær umsækjandi óskar eftir að taka námsleyfi.
3. gr.
Meðferð umsókna
Dómstólasýslan skal fjalla um umsókn um námsleyfi svo fljótt sem kostur er. Eftir því sem efni eru til getur hún óskað frekari upplýsinga og gagna frá umsækjanda.
Tilkynna skal forstöðumanni viðkomandi dómstóls um ákvörðun um að veita dómara leyfi.
4. gr.
Ákvörðun um leyfi
Heimilt er að takmarka rétt til námsleyfis við héraðsdómstóla þannig að við Héraðsdóm Reykjavíkur verði ekki fleiri en tveir dómarar í leyfi samtímis. Við aðra héraðsdómstóla þar sem dómarar eru fleiri en einn má takmarka réttinn þannig að ekki verði fleiri en einn dómari í leyfi í hvert sinni. Við Landsrétt og Hæstarétt má binda rétt til leyfis við einn dómara við hvorn rétt hverju sinni.
Dómari sem gegnt hefur embætti lengst án þess að hafa tekið leyfi skal ganga fyrir en að því frágengnu sá sem sjaldnar hefur fengið námsleyfi og því næst sá sem hefur lengri embættisaldur. Við mat á embættisaldri skal talinn sá tími sem dómari hefur verið settur í embætti. Ef tveir eða fleiri dómarar eru jafnsettir ræður hlutkesti.
5. gr.
Staðfesting á töku leyfis
Þegar umsókn um leyfi hefur verið samþykkt skal dómari innan mánaðar staðfesta við dómstólasýsluna að hann muni taka leyfið. Að öðrum kosti telst leyfið fallið niður.
6. gr.
Ferða- og dvalarkostnaður
Dómari í námsleyfi á rétt á að fá greiddan ferða- og dvalarkostnað samkvæmt reglum ferðakostnaðarnefndar allt að 1.500.000 krónum.
Umsókn um greiðslu ferða- og dvalarkostnaðar skal senda dómstólasýslunni á þar til gerðu eyðublaði til samþykktar og afgreiðslu.
7. gr.
Skýrsla um leyfi
Innan þriggja mánaða frá því dómari kemur aftur til starfa að loknu námsleyfi skal hann skila dómstólasýslunni skriflegri skýrslu um fræðistörf á leyfistíma. Ef dómari hefur sótt námskeið eða verið í formlegu námi skal fylgja skýrslunni skrifleg staðfesting á því. Einnig skal fylgja skýrslunni ritað efni sem dómari hefur samið í leyfinu til að fá birt.
Nú óskar dómari eftir að kynna niðurstöður fræðistarfa sinna fyrir starfsmönnum dómstóla og skal þá dómstólasýslan boða til fundar með þeim.
Réttur til að taka aftur námsleyfi stofnast ekki nema dómari skili skýrslu skv. 1. mgr. eða geri grein fyrir fræðistörfum á fundi skv. 2. mgr.
8. gr.
Heimild og gildistaka
Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 4. mgr. 7. gr. og 3. mgr. 43. gr. laga um dómstóla, nr. 50/2016, og úrskurði og bókun kjararáðs frá 17. desember 2015 og eru bindandi. Þær öðlast gildi 22. október 2018.
Þannig samþykkt í stjórn dómstólasýslunnar
22. október 2018.
Benedikt Bogason
formaður stjórnar dómstólasýslunnar