Dómarar skipaðir í Endurupptökudóm

Í Endurupptökudómi sitja fimm dómendur, einn frá hverju dómstigi og tveir aðrir sem ekki eru embættisdómarar, en skipað er í þessar tvær stöður að undangenginni auglýsingu og umsögn dómnefndar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti. Varamenn eru jafnmargir og skipaðir á sama hátt. Sá hæstaréttardómari sem skipaður er í dóminn er jafnframt forseti hans.

Skipunartími er fimm ár, en þó þannig að skipunartími eins manns rennur út hvert ár. Þegar skipað er í fyrsta sinn í dóminn ræður tilviljun lengd skipunartíma. Í samræmi við þetta hefur dómsmálaráðherra skipað fimm dómendur og fimm varadómendur í Endurupptökudóm. Þeir eru:

Dómendur:

Karl Axelsson, dómari við Hæstarétt Íslands, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2022.
Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2023.
Oddný Mjöll Arnardóttir, dómari við Landsrétt, skipuð frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2024.
Hólmfríður Grímsdóttir, héraðsdómari, skipuð frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2025.
Eyvindur G. Gunnarsson, prófessor, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2026.

Varadómendur:
Ingveldur Einarsdóttir, dómari við Hæstarétt Íslands, skipuð frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2022.
Stefán Geir Þórisson, lögmaður, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2023.
Aðalsteinn E. Jónasson, dómari við Landsrétt, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2024.
Helgi Sigurðsson, héraðsdómari, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2025.
Eiríkur Elís Þorláksson, dósent, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2026.

Endurupptökudómur hefur aðsetur hjá dómstólasýslunni að Suðurlandsbraut 14 í Reykjavík.

 

Sjá frétt frá Stjórnarráði Íslands