Nýjar skipanir og setningar við dómstóla
Dómsmálaráðherra hefur skipað Jónas Þór Guðmundsson í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjaness frá og með 13. mars næstkomandi. Jafnframt hefur dómsmálaráðherra sett Brynjar Níelsson í embætti dómara með starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 14. febrúar til og með 31. desember 2025.
Þá hefur dómsmálaráðherra skipað Hildi Briem sem dómanda í Endurupptökudómi og Lárentsínus Kristjánsson sem varadómanda, frá og með 4. feb. sl. til og með 3. feb. 2030.