Réttarvörslugáttin hreppti Nýsköpunarverðlaun hins opinbera
Réttarvörslugáttin er einn af verðlaunahöfum Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2025, sem veitt eru af Fjársýslunni fyrir framúrskarandi árangur í opinberri nýsköpun. Dómstólasýslan hefur unnið að verkefninu ásamt dómstólum í nánu samstarfi við dómsmálaráðuneytið.
Verðlaunin hlýtur Réttarvörslugáttin fyrir stafvæðingu réttarvörslukerfisins og bætt samstarf milli stofnana innan dómskerfisins.
Réttarvörslugáttin gengur út á að koma á nýrri og betri umgjörð fyrir samskipti aðila í íslenska réttarvörslukerfinu. Verkefnið er metnaðarfullt samstarfsverkefni dómsmálaráðuneytisins, dómstóla, lögreglunnar, ákæruvalds, Fangelsismálastofnunar, Lögmannafélags Íslands, Stafræns Íslands og hugbúnaðarfyrirtækisins Kolibri. Samstarfið hefur staðið yfir undanfarin 6 ár en undirbúningur að verkefninu hófst árið 2019 og hefur áherslan til þessa verið á að koma á stafrænum í ferlum í sakamálum og rafrænar birtingar á island.is.
"Verkefnið markar tímamót en það stuðlar að styttri málsmeðferðartíma, lægri málskostnaði, minna kolefnisspori og auknu gagnsæi. Megináherslan er að flytja gögn en ekki fólk. Það er mikill heiður fyrir okkur öll að hljóta þessi verðlaun fyrir samstarf sem hefur eflt þjónustu, einfaldað ferla og skapað ávinning fyrir samfélagið" - segir Guðlaug Dröfn Þórhallsdóttir, verkefnastjóri Réttarvörslugáttarinnar hjá dómsmálaráðuneytinu.
Nýsköpunarverðlaunin eru veitt af Fjársýslunni til að varpa ljósi á öflugt umbótastarf og nýsköpun sem bætir gæði og skilvirkni opinberrar þjónustu.
Myndin sýnir Guðlaugu Dröfn Þórhallsdóttur, verkefnastjóra Réttarvörslugáttarinnar hjá dómsmálaráðuneytinu, Írisi Elmu Guðmann, verkefnastjóra og Snædísi Ósk Sigurjónsdóttur, lögfræðing hjá dómstólasýslunni við verðlaunaafhendinguna.